Íbúð 100 í Embassy Lúxusíbúðum, Reykjavík
Íbúðin er um 60 fm. og er á 2. hæð í Garðastræti 40, 101 Reykjavík. Íbúðin er með svölum


Í dagstofunni er lítið borð, leðursófi (sem er svefnsófi fyrir 2), borðstofuborð og stólar.
Í íbúðinni er DVD/CD spilari, sjónvarp sem nær RÚV, Skjá 1, osfrv. en stöð 2 er rugluð nema á fréttatíma. Einnig er gervinhattasjónvarp þar m.a. næst BBC 1,2,3 og 4 og fleiri breskar stöðvar.
Í íbúðinni er beinn sími, og ókeypis þráðlaus og hraðvirk internettenging.

Í svefnherberginu er gott hjónarúm, sem hægt er að breyta í 2 aðskilin rúm.
Í íbúðinni er vel búið baðherbergi með sturtu.

Eldhúsið er búið ísskáp, eldavél með ofni, uppþvottavél, brauðrist, kaffivél, örbylgjuofni ofl.
Auk þess þess ýmsustu pottar og pönnur, hnífapör og önnur áhöld, glös, diskar, bollastell osfrv.
Séð frá svölunum yfir garðinn:

Þetta er reyklaus íbúð
|