Íbúð 20 Í Kastalanum Lúxusíbúðum við Tjörnina í Reykjavík
Íbúðin er um 40 fm. og er á 2. hæð hússins Íbúðinni fylgja litlar svair með útsýni yfir tjörnina og ráðhúsið.

Stofa:
Í stofunni er tvöfaldur svefnsófi, hægindastóll og borðstofuborð og stólar.
Í íbúðinni er DVD/CD spilari, sjónvarp sem nær RÚV, Skjá 1, osfrv. en stöð 2 er rugluð nema á fréttatíma. Einnig er gervinhattasjónvarp þar m.a. næst BBC 1,2,3 og 4 og fleiri breskar stöðvar.
Í íbúðinni er beinn sími, og ókeypis þráðlaus og hraðvirk internettenging.

Svefnherbergi:
Í svefnherberginu er gott hjónarúm, sem hægt er að breyta í 2 aðskilin rúm.
Baðherbergi:
Í íbúðinni er baðherbergi með sturtu
Eldhús:
Eldhús er búið ísskáp, brauðrist, kaffivél, örbylgjuofni og eldunarhellum.
Auk þess ýmsustu pottar og pönnur, hnífapör og önnur áhöld, glös, diskar, bollastell osfrv.
Íbúðinni fylgja litlar svair með útsýni yfir tjörnina og ráðhúsið.
Þetta er reyklaus íbúð
|
|