Íbúð 70 í Embassy Lúxusíbúðum, Reykjavík
Íbúðin er um 110 fm. og er á 1. hæð í Garðastræti 40, 101 Reykjavík.
Íbúðin er mjög vel búin og hana prýða fjöldi listaverka íslenskra samtímalistamana


Í hjónaherberginu er stórt hjónarúm, sem einnig er hægt að nota sem tvöfalt rúm.
Einnig svefnherbergi með 2 aðskildum rúmum og dagstofa þar sem m.a. er tvöfaldur svefnsófi.
Íbúðin rúmar þannig ágætlega 6 manns.

Í eldhúsinu er elhúsborð og stólar, ofn, hellur, uppþvottavél, brauðrist, kaffivél ofl.
auk allra áhalda til matargerðar, hnífapara bolla, diska osfrv.

Í stofunni er DVD/CD spilari, 42" flatskjás-sjónvarp sem nær RÚV, Skjá 1, osfrv. en stöð 2 er rugluð nema á fréttatíma. Einnig er gervinhattasjónvarp þar m.a. næst BBC 1,2,3 og 4 og fleiri breskar stöðvar.
Í íbúðinni er beinn sími, og ókeypis þráðlaus og hraðvirk internettenging.

Í borðstofunni m.a. borð fyrir 8 manns ofl.

Ágætis vinnuaðstaða er í íbúðinni.
Úr stofunni eru þrep niður í garðinn, þar sem er stór verönd með garðhúsgögnum.

Baðherbergið er með sturtu. Þar eru einnig litlar svalir.
Íbúðinni fylgir sérbílastæði framan við húsið.
Reykingar eru stranglega bannaðar í þessari íbúð
|