Íbúð 90 Íbúð 90 í Embassy Lúxusíbúðum, Reykjavík Íbúðin er um 55 fm. og er á 2. hæð í Garðastræti 40, 101 Reykjavík ![]() ![]() Í dagstofunni er lítið borð, leðursófi (sem er svefnsófi fyrir 2), borðstofuborð og stólar. Sjónvarpið nær RÚV, og Skjá einum (stöð 2 er rugluð nema á fréttatímum) og boðið er uppá gervihnattasjónvarp
með fjölmörgum breskum og evrópskum rásum, m.a. BBC1, 2, 3 og 4. ![]() Í svefnherberginu er gott hjónarúm, sem hægt er að breyta í 2 aðskilin rúm. ![]() Baðherbergið er með sturtu og á því eru litlar svalir. Eldhúskrókur er búinn ísskáp, brauðrist, kaffivél, örbylgjuofni og eldunarhellum. Auk þess þess ýmsustu pottar og pönnur, hnífapör og önnur áhöld, glös, diskar, bollastell osfrv.
Þetta er reyklaus íbúð |